02.11.2009
Kæru foreldrar/forráðamenn
Nú er komið að seinni innheimtudögunum hjá okkur í handboltanum, þeir sem ekki hafa gengið frá æfingagjöldum vetrarins eru
vinsamlega beðnir um að koma við í KA heimilinu, eða hafa samband svo hægt sé að ganga frá skráningu iðkenda.
Æfingagjöldin er hægt að greiða annaðhvort með peningum eða skipta greiðslum á greiðslukort. Einnig er hægt að fylla út blað
sem sent er til greiðsluþjónustu bankanna.
Ef menn vilja millifæra þá er bankanúmerið 0162-05-63299 kt. 450902-2680 og muna þá að setja kennitölu iðkanda í
skýringu.
02.11.2009
Það var ekkert gefið eftir á laugardaginn þegar KA/Þór tók á móti Haukum í N1 deild kvenna. Þórir Tryggvason var
á staðnum með myndavélina og sendi okkur nokkur athyglisverð augnablik úr leiknum.
31.10.2009
Haukarnir reyndust of stór biti fyrir KA/Þór í dag þegar liðin mættust í N1 deild kvenna. Leiknum lauk með tíu marka sigri Hauka 24-34
eftir að hafa leitt 11-17 eftir fyrri hálfleik. Hér á eftir fer umfjöllun Þrastar Ernis Viðarssonar úr Vikudegi.is
29.10.2009
Í kvöld var dregið í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarkeppninnar en sautján lið voru skráð í keppnina. KA/Þór fékk
dróst á móti Víkingi og þar sem KA/Þór var dregið á undan fá þær heimaleikinn.
29.10.2009
Á laugardaginn klukkan 16:00 fær meistaraflokkur KA/Þór heimsókn úr Hafnarfirði þegar stórlið Hauka kemur í
heimsókn í KA heimilið. Nú er brýnna en nokkru sinni að heimastelpurnar fái dyggan stuðning frá áhorfendum enda við
harðskeytta andstæðinga að etja.
KA/Þór stelpurnar ætla örugglega að bæta fyrir vonbrigðin í síðasta leik og mæta af fullum krafti í leikinn.
29.10.2009
A-stigs dómaranámskeið í handknattleik verður haldið í KA-heimilinu föstudaginn 30. október kl. 19:30 til 22:00. Leiðbeinandi verður
Brynjar Einarsson frá HDSÍ.
A-stigs dómari hefur rétt til að dæma leiki frá 8. flokki til og með 5. flokki og er undanfari B-stigs dómara.
28.10.2009
Gerð hefur verið breyting á æfingatíma hjá 5. flokki karla þannig að æfing sem var á þriðjudögum klukkan 17:00 í
Íþróttahöllinni dettur út en í staðinn kemur æfing klukkan 16:00 á miðvikudögum, sem er líka í
Íþróttahöllinni.
27.10.2009
Næstu helgi stendur mikið til hjá 6. flokki drengja. Stefnt er að því að gista aðfararnótt laugardagsins 31. október í KA
heimilinu. Drengirnir eiga að mæta kl. 21 á föstudagskvöldið í KA heimilið og æft verður fram eftir kvöldi.
26.10.2009
Síðstliðinn sunnudagsmorgun mættust KA/Þór og Fylkir í 1. deild 3. flokks kvenna. Fyrir hafði KA/Þór tapað illa gegn FH á
útivelli þar sem nokkra lykilmenn vantaði ásamt því að liðið lék langt undir getu. Voru stelpurnar því staðráðnar
í því að koma sér á beinu brautina gegn Fylki.
26.10.2009
Á laugardaginn tóku stelpurnar í KA/Þór á móti Fylki í N1-deild kvenna. Þórir Tryggvason var á staðnum vopnaður
myndavélinni og sendi okkur myndir frá leiknum. Auk þeirra fer hér á eftir umfjöllun blaðamanns Vikudags um leikinn.