Stórleikur hjá KA/Þór á morgun!

Handbolti
Stórleikur hjá KA/Þór á morgun!
Martha og stelpurnar eru klárar í slaginn!

Það er heldur betur stórslagur framundan í KA-Heimilinu þegar KA/Þór tekur á móti Fram í gríðarlega mikilvægum leik í Olísdeild kvenna klukkan 16:00 á laugardaginn. Stelpurnar eru staðráðnar í að sækja tvö dýrmæt stig en þurfa á þínum stuðning að halda!

Fram er á toppi deildarinnar fyrir leikinn en stelpurnar okkar geta með sigri komið sér nær Safamýrarliðinu auk þess sem að KA/Þór á leik til góða. Við getum tekið við 200 áhorfendum gegn framvísun neikvæðs hraðprófs og því eina vitið að bóka sig í próf á hradprof.is og mæta svo í stúkuna, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is