Alex vann gull á Vestur-Evrópuleikunum!

Lyftingar

Alex Cambray Orrason úr lyftingadeild KA keppti fyrir hönd Íslands í Frakklandi um helgina á Vestur-Evrópuleikunum í kraftlyftingum. Það má með sanni segja að Alex hafi sýnt styrk sinn en hann gerði sér lítið fyrir og vann bæði sinn flokk sem og opna flokkinn.

Alex lyftir í búnaðarlyftingum en hann lyfti 347,5 kg í hnébeygju sem er nýtt Vestur-Evrópu og Íslandsmet, geri aðrir betur!

Þá lyfti hann 212,5 kg í bekkpressu og 277,5 kg í réttstöðulyftu sem skilaði honum 837,5 kg í samanlagðri þyngd og er það bæting á hans persónulega meti um alls 40 kg.

Stórglæsilegur árangur hjá okkar manni sem kemur því heim með gull af þessu sterka móti og frábært að sjá þessa mikla bætingu. Það er áfram nóg framundan og ljóst að það verður afar gaman að fylgjast með áframhaldandi framgöngu Alex á næstu mótum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is