Fréttir

Upphitun: Stjarnan - KA

Á morgun fara KA-menn suður og mæta Stjörnunni á Stjörnuvelli í Garðabænum. Þetta er síðasti útileikur KA í sumar og jafnframt næstsíðasti leikur sumarsins. Leikurinn hefst klukkan 18:00. Við hvetjum alla KA-menn fyrir sunnan til að skella sér á leikinn.

Árni Arnar valinn á U17 æfingar

Árni Arnar Sæmundsson leikmaður þriðja flokks karla hefur verið valinn á úrtaksæfingar fyrir U17 ára landslið karla.

Elmar í eins leiks bann - Andri Júl tveggja

Eins og flestir KA-menn ættu að hafa tekið eftir þá endaði Þórsleikurinn í síðustu viku illa og ekki bætti úr skák að tveir okkar manna, fyrirliðinn Elmar Dan og sóknarmaðurinn Andri Júlíusson fengu báðir rauð spjöld í leiknum.

Árgangamót knattspyrnudeildar KA

Knattspyrnudeild KA hefur ákveðið að halda árgangamót í fótbolta föstudaginn 19. sept. í tengslum við lokahóf deildarinnar sem fram fer á Hótel KEA kvöldið eftir.

Handboltaleikir hjá 3. fl. kvenna og 4. fl. karla um helgina

Um helgina leika 3. fl. kvenna og 4. fl. karla í forkeppni vegna niðurröðunar í deildir fyrir veturinn. Leikið verður í KA heimilinu bæði laugardag og sunnudag. Smellið á Lesa meira til að sjá niðurröðun leikjanna.

Æfingatafla vetrarins komin

Æfingatöfluna má sjá undir hlekknum "Æfingatafla" hér til vinstri. Æfingar meistaraflokka hefjast á morgun þriðjudaginn 9. september. Æfingar yngriflokka - nema 6. flokks - fimmtudaginn 11. sept. Athugið að æfingar 6. flokks hefjast fimmtudaginn 18. september en þá ætla Blakdeild KA og Ungmennafélag Akureyrar að hefja samstarf um íþróttaskóla.

Þökkum aðstoðina við NEVZA mótið

Fyrir hönd Blakdeildar KA og BLÍ vil ég þakka öllum þeim mörgu sem aðstoðuðu við framkvæmd NEVZA mótsins hér á Akureyri. Við höfum fundið að mótið hefur fengið mjög jákvæða umfjöllun, bæði hér á Akureyri og vítt um land. Fólk kom víða að til þess að fylgjast með mótinu og var aðsókn á leiki með ágætum og hörkustemming í íþróttahúsunum - sérstaklega á leikjum íslensku liðanna. Sigurður Arnar Ólafsson  

Fyrstu leikirnir á NEVZA mótinu morgun kl 13:00

Íslenka liðið hefur mótið með því að mæta erfiðum andstæðinum, sænska liðinu kl. 13:00 í KA heimilinu. Klukkan 15:30 setur Sigrún Björk Jakobsdóttir mótið og fer setning fram í Höllinni. Strax á eftir mætir Íslenska karlaliðið Englendinum.  ATHUGIÐ AÐ FRÍTT ER Á ALLA LEIKI MÓTSINS

Sex landsliðsmenn frá KA

Af þeim 24 landsliðsmönnum sem Ísland teflir fram á NEVZA mótinu í blaki um helgina eru 6 frá Blakdeild KA eða 25% landsliðsmanna. Það verður að teljast athyglisverður árangur og bendir til þess að KA sé að standa sig vel í uppbyggingarstarfinu.  Nú er bara sjá hvort okkar fólk nær að standa sig um helgina.

NEVZA mótið í blaki undir 19 ára landsliða

NEVZA mótið í blaki undir 19 ára (U19) landsliða verður haldið á Akureyri dagana 5.-7. september næstkomandi og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið hér á landi. Blaksamband Íslands er framkvæmdaraðili mótsins í samstarfi við Blakdeild KA.