94 ára afmælisfögnuður KA

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak

Knattspyrnufélag Akureyrar fagnar nú 94 ára afmæli sínu en annað árið í röð förum við þá leið að halda upp á afmæli félagsins með sjónvarpsþætti vegna Covid stöðunnar. Árið 2021 var heldur betur blómlegt hjá okkur í KA og gaman að rifja upp þá stóru sigra sem unnust á árinu.

Í þættinum sem er aðgengilegur hér fyrir neðan heiðrum við íþróttakarl og íþróttakonu KA, lið og þjálfara ársins og afhendum einnig Böggubikarinn. Ingvar Már Gíslason formaður KA flytur svo ávarp sitt. Siguróli Magni Sigurðsson sér um þáttastjórnunina og Ágúst Stefánsson sá um upptöku og samsetningu á þættinum. Góða skemmtun.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is