Blakæfingarnar byrja á mánudaginn!

Blak

Æfingar blakdeildar KA hefjast á mánudaginn og hvetjum við alla sem hafa áhuga til að koma og prófa þessa stórskemmtilegu íþrótt. Æfingar fara fram í KA-Heimilinu og Naustaskóla en mikil fjölgun hefur orðið í blakinu hjá KA undanfarin ár og erum við afar stolt af því.

Við leggjum mikinn metnað í starf okkar og höfum meðal annars fjölgað æfingum fyrir komandi vetur og er það von okkar að okkar öfluga starf verði enn betra en frábær árangur náðist á blakvellinum á síðasta vetri bæði hjá meistaraflokkum KA og yngriflokkum félagsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is