Blakæfingarnar byrja á morgun!

Blak

Æfingar Blakdeildar KA hefjast á morgun, mánudaginn 23. ágúst, en æft verður bæði í KA-Heimilinu og Naustaskóla. Mikil aukning hefur orðið í blakstarfinu hjá okkur undanfarin ár sem segir mikið til um hve gott starf blakdeildar er og hve gaman það er að spila blak.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem áhuga hafa til að mæta og prófa blakið hjá okkur en þjálfarar í vetur eru þau Paula del Olmo, Oscar Fernandez Celis og André Collins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is