Risabikarslagur hjá stelpunum í kvöld!

Blak
Risabikarslagur hjá stelpunum í kvöld!
Stelpurnar eru klárar í slaginn!

Einn stærsti leikur blaktímabilsins er í kvöld þegar toppliðin í Mizunodeild kvenna mætast í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins. KA sem er á toppnum sækir Aftureldingu heim og ljóst að annað af þessum frábæru liðum missir því af bikarúrslitahelginni.

Það má því búast við svakalegum leik klukkan 19:30 að Varmá í Mosfellsbæ og hvetjum við alla sem geta til að mæta og styðja stelpurnar áfram í næstu umferð, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is