09.10.2026
KA varð bæði Íslands- og Bikarmeistari í blaki karla árið 1991 og var þetta í annað sinn sem KA varð Íslandsmeistari í blaki. Í tilefni að 35 ár eru frá þessu magnaða afreki hittust nokkrir góðir aðilar úr hópnum og rifjuðu upp þessa mögnuðu tíma
22.09.2026
Paula del Olmo Gomez hefur verið ráðin yfirþjálfari yngriflokka sem og verkefnastjóri blakdeildar KA. Þetta er enn eitt stóra skrefið hjá blakdeild félagsins í átt að metnaðarfyllra og faglegra starfi en Paula hefur gegnt lykilstarfi í þróun blakstarfsins hjá KA frá árinu 2018
20.07.2026
KA átti fimm fulltrúa í U18 ára landsliði Íslands í blaki karla sem keppti á Evrópumeistaramótinu sem fram fór á Ítalíu nú á dögunum. Þetta eru þeir Ágúst Leó Sigurfinsson, Eiríkur Hrafn Baldvinsson, Hákon Freyr Arnarsson, Kristján Már Árnason og Þórarinn Bergur Arinbjarnarson
19.07.2026
Gullverðlaunin hrannast inn í strandblakinu hjá blakdeild KA en í dag vann Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir gull ásamt liðsfélaga hennar henni Helenu Kristjánsdóttur á SCA móti í flokki U18 sem fram fór í Andorra
14.07.2026
Sölvi og Svanur Hafþórssynir leikmenn KA gerðu sér lítið fyrir og unnu gullverðlaun á SCA móti í strandblaki í flokki U18 sem fram fór í Andorra
13.07.2026
Blakdeild KA átti fjóra fulltrúa í U18 ára landsliði Íslands í blaki kvenna sem keppti í lokakeppni EM sem fram fór í Lettlandi nú á dögunum. Þátttaka liðsins er söguleg en þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem Ísland kemst í lokakeppni stórmóts í blaki
27.05.2026
Blakdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi tímabil en systkinin Sigurður Helgi Brynjúlfsson og Inga Björg Brynjúlfsdóttir eru gengin í raðir KA frá Völsung á Húsavík
27.05.2026
Blakdeild KA á alls átta fulltrúa í lokahópum U18 landsliða karla og kvenna í blaki sem taka þátt á EM í sumar en þetta er í fyrsta skiptið sem íslensk blaklandslið keppa á lokamóti EM en bæði lið tryggðu sér þátttökurétt eftir sigur á Evrópumóti smáþjóða fyrr á árinu
10.05.2026
Blakdeild KA gerði upp flottan vetur á glæsilegu lokahófi í KA-Heimilinu í gær en karlalið KA varð Íslandsmeistari eftir hörkurimmu við Þrótt og kvennalið KA varð í 2. sæti í deild, bikar og á Íslandsmótinu
15.01.2026
Blaklandslið Íslands í flokki U18 bæði drengja og stúlkna skrifuðu söguna upp á nýtt með stórkostlegum árangri á Evrópumóti smáþjóða. Bæði lið unnu mótið og tryggðu sér á sama tíma sæti á lokamóti EM en þetta er í fyrsta skiptið sem íslensk blaklandslið ná þessum árangri í þessum aldursflokki