KA þrefaldur meistari í blaki kvenna!

Blak

KA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í dag er liðið vann sannfærandi 3-0 sigur á HK í hreinum úrslitaleik um titilinn. Stelpurnar áttu líklega sinn besta leik í vetur fyrir framan troðfullt KA-Heimili og tryggðu fyrsta Íslandsmeistaratitil KA í blaki kvenna!

Ekki nóg með að vera Íslandsmeistarar þá unnu stelpurnar einnig Bikarkeppnina og Deildarkeppnina og unnu því alla þrjá titla vetrarins, til hamingju með fullkomið tímabil!

Nánari umfjöllun um leikinn er væntanleg.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is