Stelpurnar ætla sér titilinn í kvöld!

Blak
Stelpurnar ætla sér titilinn í kvöld!
Hampa stelpurnar Íslandsmeistaratitlinum í kvöld?

Það er komið að fjórða leik KA og HK um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna. Stelpurnar okkar leiða 2-1 og tryggja titilinn með sigri en það er ljóst að lið HK mun ekki gefa neitt eftir. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 í Fagralundi í Kópavogi og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta og styðja okkar lið í þessum risaleik.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn sjálfan þá verður hann í beinni útsendingu á SportTV og er um að gera að fylgjast vel með gangi mála en vinni stelpurnar í kvöld verður það í fyrsta skiptið í sögunni sem KA verður Íslandsmeistari í blaki kvenna en stelpurnar eru nú þegar Deildar- og Bikarmeistarar og ætla sér því að gera tímabilið sögulegt með því að vinna þrennuna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is