Vetrartafla Blakdeildar KA - Frítt að æfa í sept!

Blak

Vetrarstarfið er komið á fullt í blakinu og viljum við bjóða alla áhugasama velkomna að koma og prófa en frítt er að æfa í september. Mikil gróska er í blakinu hjá KA um þessar mundir en bæði karla- og kvennalið félagsins eru Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar eftir magnað tímabil.

Paula del Olmo sér um þjálfun hjá 3.-7. flokk og hún Paula ásamt Filip Pawel Szewczyk stýra 2. flokk. Blakdeild æfir bæði í KA-Heimilinu og íþróttahúsi Naustaskóla og hvetjum við ykkur eindregið til að kíkja og prófa blak!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is