Fréttir

Foreldrar 4. flokks karla og kvenna: Partille fundur

Foreldrar/forráðamenn Næstkomandi þriðjudag 24/11 kl. 18:00 verður foreldra fundur vegna Partille ferðar 4. flokks karla og kvenna í KA heimilinu.  Við erum búin að fá tvö  verðtilboð í ferðina og tímasetningar  og nú þurfum við að ákveða framhaldið.  Mjög miklvægt er að öll börn í flokknum eigi fulltrúa á fundinum því við þurfum að ganga frá pöntun sem fyrst.  Á  fundinum verður einnig rætt um áframhaldandi fjáröflun fyrir ferðina. Með von um að sjá sem flesta. Partille nefndin

Fyrstu stig KA/Þór komin í hús eftir sigur á Víking

Stelpurnar í KA/Þór fylgdu eftir góðum sigri á Víkingum í Eimskipsbikarnum þegar liðin mættust í N1-deildinni í gær. Leikurinn fór fram í Víkinni og var ljóst í fyrri hálfleik að KA/Þór stelpurnar voru komnar til að sækja bæði stigin. Eftir fyrri hálfleik munaði sjö mörkum á liðinum, staðan 17-10 okkar stelpum í vil. Í seinni hálfleik var meira jafnræði með liðunum og hélst munurinn áfram þannig að þegar upp var staðið var sjö marka sigur í höfn 29:22.

4. flokkur kvenna með góðan sigur á Fylki í dag

4. flokkur kvenna lék sinn annan leik á tímabilinu klukkan 09:00 á  sunnudagsmorgunn. Um síðustu helgi steinlá liðið heima fyrir Víking í  afskaplega döprum leik. Í þeim leik voru stelpurnar engan veginn  tilbúnar í kollinum til að spila handbolta og var sett sú krafa á þær  fyrir þennan leik að mæta klárar.

Risaslagur á sunnudaginn: Akureyri - FH í bikarkeppninni

Það er nóg að gera í handboltanum þessa dagana. Sigurleikur gegn Stjörnunni í gær eftir rafmagnaðar lokasekúndur. Á sunnudaginn verður sannkallaður risaslagur í Eimskipsbikarnum þegar Akureyri tekur á móti FH í Íþróttahöllinni klukkan 16:00. Akureyringar fá nú kærkomið tækifæri til að hefna fyrir deildarleikinn á dögunum þegar FH-ingar flugu suður með 2 stig úr Höllinni.

Yfirburðasigur KA/Þór á Víkingum í dag - myndir

Það var skemmtileg stemming í KA heimilinu í dag þegar KA/Þór lék sinn fyrsta bikarleik á tímabilinu. Andstæðingarnir voru úrvalsdeildarlið Víkings. Fyrirfram áttu menn von á spennandi leik þar sem jafnt er komið með liðunum sem sitja án stiga á botni N1-deildarinnar.

Leikur dagsins KA/Þór - Víkingur

Eins og venjulega er að duga eða drepast í Eimskipsbikarnum! Minnum á leik KA/Þórs gegn Víkingum í dag klukkan 17:30 í KA heimilinu.

Til foreldra drengja á yngra ári 6. flokks

Föstudaginn 20. nóvember er fyrirhuguð ferð í aðra umferð Íslandsmóts hjá drengjunum. Mæting er í KA heimilið kl. 11 og þurfa drengirnir því að fá frí í skóla þennan morgun. Þar sem undirritaður er að fara erlendis og kemur ekki aftur fyrr en seinni part næstu viku óskar hann eftir því að foreldrar biðji um leyfi fyrir drengina þennan morgun.

KA/Þór mætir Víkingum í Eimskipsbikarnum á miðvikudaginn

Meistaraflokkur KA/Þór hefur í nógu að snúast þessa dagana. Á miðvikudaginn klukkan 17:30 er komið að fyrsta leiknum í Eimskipsbikarnum en þá kemur Víkingsliðið í heimsókn. Bæði liðin komu til leiks í efstu deild á þessu tímabili og er líkt á komið með liðunum sem eru enn án stiga í deildinni. Það má því reikna með hörkuleik þar sem bæði lið hungrar í að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

3. flokkur kvenna mætti liði Stjörnunnar í KA heimilinu á sunnudaginn

Strax frá byrjun tóku Stjörnustelpur frumkvæðið og héldu því allt til loka leiks. Staðan í hálfleik var 13-20 fyrir Stjörnuna og lokatölur 25-36. Eins og sést á úrslitum var lítið um tilþrif i vörninni. Stelpurnar virkuðu oft á tíðum hálf áhugalausar og nánast horfðu á Stjörnustelpur labba í gegnum vörnina aftur og aftur. Skytturnar hjá Stjörnunni fengu þann frið sem þær vildu til að athafna sig og línumaðurinn skottaðist fyrir aftan dapra vörn norðanstúlkna eins og hún vildi. Þá skipti engu í hverslags varnarafbrigði var skipt, alltaf léku þær naut og nautabana við Stjörnustelpur.

Fyrsti leikur stelpnanna í 4. flokki

Stelpurnar í 4. flokk kvenna léku sinn fyrsta leik á tímabilinu á laugardaginn var. Leikurinn byrjaði ágætlega. Vörn KA stúlkna var sterk og áttu Víkingsstúlkur í miklum vandræðum með að finna glufu á vörninni. Sóknarlega virkuðu heimastúlkur frekar óstyrkar og áttu í miklum erfiðleikum með einföldustu aðgerðir.