Fullt hús hjá KA/Þór (myndaveislur)

Handbolti
Fullt hús hjá KA/Þór (myndaveislur)
TVÖ STIG Í HÚS! (mynd: Egill Bjarni)

KA/Þór tók á móti Stjörnunni í Olísdeild kvenna um helgina í KA-Heimilinu en liðin hafa barist grimmilega undanfarin ár og ætla sér bæði stóra hluti í vetur. Það mátti því búast við krefjandi leik en stelpurnar okkar sýndu frábæra spilamennsku og tryggðu sér stigin tvö.

Liðin mættust á dögunum í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í Garðabænum þar sem KA/Þór vann góðan baráttusigur eftir að jafnt hafði verið á með liðunum framan af. Leikurinn í KA-Heimilinu spilaðist ákaflega svipað.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum

Gestirnir fóru ögn betur af stað og leiddu lengst af í fyrri hálfleiknum en rétt eins og í bikarleiknum kom frábær kafli hjá stelpunum okkar rétt fyrir hlé og KA/Þór leiddi því 12-11 er flautað var til hálfleiks.

Tímalína fyrri hálfleiks

Darija Zecevic í marki gestanna hafði átt frábæran fyrri hálfleik en hún gaf eftir í þeim síðari á sama tíma og varnarleikur og markvarslan hjá okkar liði small. Í kjölfarið gjörsamlega keyrðu stelpurnar yfir lið Stjörnunnar og var munurinn skyndilega orðinn sjö mörk, 21-14, um miðbik síðari hálfleiks.

Munurinn hélst í 5-7 mörkum næstu mínútur uns Andri Snær Stefánsson þjálfari KA/Þórs fór að hreyfa meira við liðinu. Stjarnan tókst því að laga stöðuna svo um munaði en lokatölur voru 27-26 þar sem gestirnir gerðu síðustu fjögur mörkin. Sigurinn var því meira sannfærandi en lokatölurnar gefa merki um.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Rakel Sara Elvarsdóttir var markahæst í okkar liði með 8 mörk en hún skoraði meðal annars fjögur mörk úr hraðaupphlaupum. Ásdís Guðmundsdóttir gerði 5 mörk, Aldís Ásta Heimisdóttir 4, Martha Hermannsdóttir 3, Sofie Søberg Larsen 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1 og þá sneri Rut Jónsdóttir aftur eftir meiðsli og gerði 1 mark auk þess sem hún átti 7 stoðsendingar. Í markinu varði Matea Lonac 8 skot og átti auk þess tvær stoðsendingar.

Tímalína seinni hálfleiks

KA/Þór er því með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir deildarinnar og fara stelpurnar vel af stað. Framundan er hinsvegar sjálf bikarúrslitahelgin en á fimmtudaginn er leikur í undanúrslitum bikarsins gegn liði FH. Leikið er að Ásvöllum og ef sigur vinnst í þeim leik er úrslitaleikur gegn annaðhvort Fram eða Val á laugardeginum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is