Stórleikur gegn ÍBV á laugardaginn!

Handbolti
Stórleikur gegn ÍBV á laugardaginn!
Nú þurfum við á ÞÉR að halda!

KA tekur á móti ÍBV í næstsíðasta heimaleik vetrarins í Olís deild karla á laugardaginn kl. 17:00. Strákarnir eru í svakalegri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og þurfa á þínum stuðning að halda til að sækja gríðarlega mikilvæg stig gegn öflugu liði ÍBV.

Hvetjum ykkur eindregið til að mæta snemma en klukkutíma fyrir leik verður páskaeggjaleikur og skothittnileikur. Fyrstu 100 sem mæta fá frían KA bol og þá er frí andlitsmálning í boði. Þá verður Lemon og Greifapizzur til sölu fyrir svanga stuðningsmenn.

Strákarnir unnu ótrúlegan 22-26 útisigur á Aftureldingu í síðustu umferð sem lyfti liðinu upp í 8. sæti deildarinnar sem er einmitt síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni. Það eru þó enn þrjár umferðir eftir af deildinni og ljóst að liðið þarf að sækja fleiri stig til að tryggja þátttökurétt þar.

Það er vægast sagt rík hefð í sögu KA fyrir úrslitakeppninni og það er alveg ljóst að við ætlum okkur þangað, í stemningu eins og hefur verið í KA-Heimilinu getur allt gerst og ekkert lið sem getur sótt auðveldan sigur á okkar heimavelli.

Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn, mætum snemma og tökum þátt í gleðinni, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is