Fréttir

Jói Valgeirs: Dómarar hér fyrir norðan vel undirbúnir

Jóhannes Valgeirsson hefur verið einn fremsti dómari landsins undanfarin ár en hann er einn þriggja dómara sem dæma fyrir hönd KA og eru í svokölluðum Landsdómara A flokki.

Leik KA og KR í öðrum flokki frestað

Fyrirhuguðum leik KA og KR í 2. flokki sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað um óákveðinn tíma. KR-ingarnir ætluðu að fljúga norður en vegna ösku í háloftunum úr eldgosinu í Eyjafjallajökli er ekki hægt að fljúga á milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Leikmannakynning: Hverjir eru í meistaraflokki KA?

Stutt umfjöllun með upplýsingum um þá 25 leikmenn sem skráðir eru í meistaraflokk KA þetta keppnistímabil. Margir af þessum strákum eru reyndar einnig í eldlínunni með öðrum flokki félagsins.

Davíð Rúnar fyrirliði 2. flokks: Mikil tilhlökkun

Tímabilið hjá 2. flokki hefst á morgun með stórleik gegn Íslandsmeisturum KR en leikurinn fer fram í Boganum þar sem KA-svæðið er ekki klárt og hefst kl. 17:00. Davíð Rúnar fyrirliði liðsins segir mikla tilhlökkun vera komna í mannskapinn.

Lokahóf yngri flokka Handknattleiksdeildar

Lokahóf yngri flokka Handknattleiksdeildar KA fer fram í KA-heimilinu föstudaginn 21. maí kl. 18:00. Farið verður í ýmsa leiki og þrautir leystar undir leiðsögn Einvarðar Jóhannssonar þjálfara. Viðurkenningar verða veittar fyrir bestu leikmenn hvers árgangs og fyrir mestu framfarir í vetur. Á eftir býður Handknattleiksdeild KA öllum í pizzu og gos. Foreldrar og systkin eru eindregið hvött til að mæta með iðkendum. Handknattleiksdeild KA.

Umfjöllun: KA - Draupnir (Með myndum)

Í gærkvöldi áttust við KA og Draupnir í Boganum. Fyrirfram var spáð KA nokkuð auðveldum sigri. Draupnir leikur í þriðju deildinni en eins og flestir ættu að vita leikur KA í þeirri fyrstu. Leikurinn var nokkuð tíðindalítill og ekki mikið fyrir augað.

Vel heppnað lokahóf handboltans

Á miðvikudagskvöldið hélt Kvennaráð Handknattleiksdeildar KA lokahóf sitt fyrir meistara- og 3. flokk kvenna á Greifanum.   Allflestar stelpurnar voru mættar ásamt þjálfurum og stjórn og gerðu sér glaðan dag.   Farið var yfir stöðu liðsins og æfingar í maí ásamt framtíðarhorfum.  Þjálfararnir Hlynur Jóhannsson og Stefán Guðnason fengu þakklætisvott frá stjórn fyrir vel unnin störf.

Aðalbjörn Hannesson: Allt getur gerst í bikarnum

Í tilefni þess að KA og Draupnir eigast við á morgun ákváðum við að heyra aðeins í Aðalbirni Hannessyni, leikmanni Draupnis, fréttaritara KA síðunnar og fyrrum leikmanni KA.

Hvaða KA-menn eru í Draupni?

Á mánudaginn mun KA lið mæta Draupni í bikarnum. En hverjir eru í Draupni? Hér er smá samantekt um þá KA-stráka í Draupni sem eru í 16-manna hóp í leiknum.

Upphitun: KA – Draupnir

Á morgun taka KA-menn á móti Draupni í Boganum klukkan 19:00. Um er að ræða leik í 2. umferð VISA-bikarsins.  KA gerðu jafntefli gegn Gróttu í síðasta leik, 1:1. Það kostar 500kr.- inn á leikinn fyrir 16 ára og eldri. Ársmiðar gilda ekki