Fréttir

Drög að leikjaniðurröðun í sumar

Drög að leikjaniðurröðun sumarsins er komin inn á vef KSÍ ásamt dagsetningum. KA byrjar tímabilið á útileik gegn Selfoss 10. maí á sunnudegi en á föstudeginum eftir það er nágrannaslagur milli Þór og KA.

Greifamót KA í þriðja flokki um helgina

Um helgina fer fram Greifamót KA fyrir þriðja flokk karla í Boganum en mótið hefst á föstudegi og lýkur síðdegis á sunnudegi.

Aðalfundi frestað

Aðalfundi Knattspyrnudeildar hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ný tímasetning verður auglýst hér á síðunni seinna í mánuðinum.

Bæði lið enduðu Soccerade með slæmum töpum

Meistaraflokkur tapaði úrslitaleiknum 1-0 gegn Þór og 2. flokkur sá ekki til sólar í 6-1 tapi gegn Völsungum í leik um 5. sætið.

Sigbjörn Gunnarsson er látinn

Sigbjörn Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður og sveitarstjóri er látinn, 57 ára að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 15. febrúar s.l. Sigbjörn var kjörinn á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra árið 1991 og sat á þingi til ársins 1995 og var m.a. formaður fjárlaganefndar um tíma. Hann var sveitarstjóri Skútustaðarhrepps í átta ár og sveitarstjóri Þingeyjarsveitar í þrjú ár.

3. fl. kvenna: KA/Þór - Stjarnan

Leikurinn gegn Stjörnunni var nokkuð góður heilt yfir. Í byrjun leiks sýndu KA/Þór stelpur góðan leik og börðust vel í vörninni ásamt því að vera ákveðnar í sókninni. Nokkur klaufamistök urðu þó til þess að þegar fyrri hálfleik lauk var staðan jöfn, 13-13.

FH lagði KA/Þór

Síðastliðinn laugardag lék meistaraflokkur KA/Þórs sinn stærsta  leik á tímabilinu en þá spiluðu þær við lið FH í undanúrslitum Eimskipsbikars kvenna. FH stúlkur mættu ákveðnar til leiks og tóku strax öll völd á vellinum.  Mikil taugaspenna var í okkar stúlkum og reynslumikið lið FH nýtti sér aðstæður til hins ítrasta. FH leiddi með 12 mörkum í hálfleik og nokkuð ljóst að draumurinn um að komast í höllina var orðinn ansi fjarlægur.

Kolbrún Gígja valin í U-17 ára landsliðið

Rétt í þessu var verið að velja Kolbrúnu Gígju í u-17 ára landslið kvenna. Hún hefur verið að æfa með þeim en nú er búið að velja hana í lokahópinn. Fyrirliggjandi verkefni landsliðsins er keppni í forkeppni EM dagana 6-8 mars. Kolbrún hefur farið mikinn í 4. flokk í vetur ásamt því hafa spilað nokkra leiki með unglinga og meistaraflokk og staðið sig þar með sóma. Við sendum Kolbrúnu til hamingju með þessa viðurkenningu og óskum henni áframhaldandi velfarnaðar í boltanum.

4. flokkur kvenna: ágætur árangur um helgina

Þar sem þjálfari KA stúlkna var upptekinn þessa helgi út af undanúrslitaleik meistaraflokks var Vilhjálmur Einarsson fenginn til að fara suður með liðinu.  Á laugardeginum mættu stelpurnar Fjölni í Grafarvogi. Eitthvað gekk illa hjá Fjölnisstúlkum að manna liðið og fyrir vikið mættu einungis sex stelpur til leiks hjá Fjölni!

4. flokkur: 2 sigrar um helgina

/* 4. flokkur karla lék um helgina í KA-Heimilinu. A-liðið lék gegn toppliði Stjörnunnar og vann þar mjög sannfærandi sigur 26-21 eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hálfleik. B-1 vann Þrótt stórt 31-17 en B-2 beið lægri hlut fyrir Stjörnumönnum 16-17 eftir hörkuleik. A-liðið hefur nú komið spennu í sína deild og er nú einungis 2 stigum á eftir toppliðinu. B-liðin bæði eru líka einum sigurleik á eftir efstu liðum. Það er því alls staðar að fara í gang mjög spennandi og áhugaverð báráttu um efstu sætin í deildunum og skiptir hver leikur gríðarlegu máli þessa stundina.