23.02.2009
Stelpurnar í A liði mættu liði Stjörnunnar á sunnudagsmorgun. Stjarnan hafði fyrir leikinn aðeins tapað einum leik í deildinni og því
ljóst að erfiður leikur var í vændum.
20.02.2009
Á sunnudag leikur A-lið 4. flokks í undanúrslitum bikarkeppninnar. Strákarnir mæta Stjörnunni í Mýrinni klukkan 15:00 á sunnudag og
munu með sigri komast í sjálfa Laugardalshöllina. Um seinustu helgi vann KA þetta sama Stjörnulið 26-21 í KA-Heimilinu. KA-menn í Reykjavík
eru hvattir til að mæta á leikinn.
B-2 í 4. flokki á svo leik á Húsavík á sunnudag.
17.02.2009
Leikurinn gegn Stjörnunni var nokkuð góður heilt yfir. Í byrjun leiks sýndu KA/Þór stelpur góðan leik og börðust vel í
vörninni ásamt því að vera ákveðnar í sókninni. Nokkur klaufamistök urðu þó til þess að þegar fyrri
hálfleik lauk var staðan jöfn, 13-13.
16.02.2009
Síðastliðinn laugardag lék meistaraflokkur KA/Þórs sinn stærsta leik á tímabilinu en þá spiluðu þær
við lið FH í undanúrslitum Eimskipsbikars kvenna.
FH stúlkur mættu ákveðnar til leiks og tóku strax öll völd á vellinum. Mikil taugaspenna var í okkar stúlkum og reynslumikið
lið FH nýtti sér aðstæður til hins ítrasta. FH leiddi með 12 mörkum í hálfleik og nokkuð ljóst að draumurinn um að
komast í höllina var orðinn ansi fjarlægur.
16.02.2009
Rétt í þessu var verið að velja Kolbrúnu Gígju í u-17 ára landslið kvenna. Hún hefur
verið að æfa með þeim en nú er búið að velja hana í lokahópinn.
Fyrirliggjandi verkefni landsliðsins er keppni í forkeppni EM dagana 6-8 mars.
Kolbrún hefur farið mikinn í 4. flokk í vetur ásamt því hafa spilað nokkra leiki með unglinga og meistaraflokk og staðið sig þar
með sóma.
Við sendum Kolbrúnu til hamingju með þessa viðurkenningu og óskum henni áframhaldandi velfarnaðar í boltanum.
16.02.2009
Þar sem þjálfari KA stúlkna var upptekinn þessa helgi út af undanúrslitaleik meistaraflokks var Vilhjálmur Einarsson fenginn til að fara
suður með liðinu. Á laugardeginum mættu stelpurnar Fjölni í Grafarvogi. Eitthvað gekk illa hjá Fjölnisstúlkum að manna
liðið og fyrir vikið mættu einungis sex stelpur til leiks hjá Fjölni!
15.02.2009
/*
4. flokkur karla lék um helgina í KA-Heimilinu. A-liðið lék gegn toppliði Stjörnunnar og vann
þar mjög sannfærandi sigur 26-21 eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hálfleik. B-1 vann Þrótt stórt 31-17 en B-2 beið
lægri hlut fyrir Stjörnumönnum 16-17 eftir hörkuleik. A-liðið hefur nú komið spennu í sína deild og er nú einungis 2 stigum á eftir
toppliðinu. B-liðin bæði eru líka einum sigurleik á eftir efstu liðum. Það er því alls staðar að fara í gang mjög
spennandi og áhugaverð báráttu um efstu sætin í deildunum og skiptir hver leikur gríðarlegu máli þessa stundina.
14.02.2009
Öll þrjú lið 4. flokks karla leika um helgina í KA-Heimilinu. Í A-liðum kemur Stjarnan í heimsókn en Stjarnan er á toppi deildarinnar
nokkuð á undan öðrum liðum. Ljóst er að til að okkar menn eigi möguleika á að berjast við þá á toppnum þá
þarf KA sigur í leiknum. B-liðin bæði eru einnig í toppbaráttu í sínum deildum. B-2 leikur einnig við Stjörnuna sem er sæti
neðar en þeir og B-1 spilar við Þrótt. Fólk er eindregið hvatt til að mæta á leikina.
Laugardagur:
18:00: KA - Stjarnan (A-lið)
Sunnudagur:
10:00: KA2 - Stjarnan (B-lið)
11:00: KA1 - Þróttur (B-lið)
12.02.2009
Stelpurnar í meistaraflokki og 3. flokki kvenna fóru suður um liðna helgi. 4 leikir voru á dagskrá, tveir í meistaraflokki og tveir í
unglingaflokki. Þar sem margar í meistaraflokk eru einnig gjaldgengar í unglingaflokk var nokkuð ljóst að skipta þurfti leikjunum niður á
mannskapinn.
11.02.2009
Á laugardaginn verður stærsti leikur tímabilsins í
kvennahandboltanum þegar lið KA/Þór tekur á móti úrvalsdeildarliði FH í 4-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikurinn hefst
klukkan 16:00 og verður í KA heimilinu. Það kostar ekkert á leikinn og því ástæða til að hvetja alla til að koma og
styðja stelpurnar sem hafa tekið gríðarlegum framförum í vetur. Skemmst er að minnast þess að á leið sinni í bikarkeppninni
sigruðu þær úrvalsdeildarlið Gróttu 22-21 í hörkuleik.