19.05.2009
Lokahóf yngri flokka Handknattleiksdeildar KA fer fram í KA-heimilinu miðvikudaginn 20. maí kl. 18:00.
Farið verður í ýmsa leiki og þrautir leystar undir leiðsögn Einvarðs Jóhannssonar þjálfara.
15.05.2009
Núna á dögunum var valinn landsliðshópur U-17 í handbolta en sá hópur mun
æfa um helgina. Alls voru fjórir KA-menn valdir í hópinn. Það eru þeir Ásgeir Jóhann Kristinsson (skytta), Guðmundur Hólmar
Helgason (skytta og miðjumaður), Gunnar Bjarki Ólafsson (markvörður) og Sigþór Árni Heimisson (horna- og miðjumaður).
Þetta er glæsilegt afrek fyrir drengina að vera valdir í þennan hóp en þessir fjórir
hafa verið í hverjum einasta hóp síðan fyrst var farið að velja landsliðshópa fyrir þennan árgang. Við óskum þeim
innilega til hamingju með valið en athygli vekur þó að ekki séu fleiri frá KA í þessum hóp því að auki þessum eru svo
sannarlega einstaklingar sem eiga heima þarna
14.05.2009
Ekki verða fleiri laugardagsæfingar hjá strákunum en mánudags- og fimmtudagsæfingarnar halda áfram til mánaðarmóta.
Minnum á að lokahóf yngri flokka handboltans verður miðvikudaginn 20. maí en nánar verður fjallað um það hér á
síðunni fljótlega.
12.05.2009
KA/Þór lék sinn síðasta leik á tímabilinu á laugardag gegn Víkingi. Þetta var lokaleikur í úrslitakeppni
2.deildar.
Víkingar sigruðu í leiknum 26-25 eftir að staðan í hálfleik var 15-14 fyrir Víking. Markahæstar í liði KA/Þórs
voru Arna Erlingsdóttir með 8 mörk og Emma Sardarsdóttir með 6 mörk.
Nú taka við þrek og kraftæfingar hjá stelpunum fram að sumarfríi í júní.
Stefnan er svo sett á að æfingar hefjist um miðjan júlí og að æfa af krafti til að taka þátt í efstu deild á næsta
vetri.
07.05.2009
Á laugardaginn er komið að stærsta leik ársins í kvennaboltanum. KA/Þór og Víkingur leika þá til úrslita í 2.
deild kvenna og er þetta jafnframt lokaleikur kvennahandboltans í ár. Leikurinn fer fram á Blönduósi og hefst klukkan 13:00 á laugardaginn.
Það er því tilvalið að skreppa í bíltúr á Blönduós, sjá skemmtilegan handbolta og hvetja stelpurnar til sigurs.
30.04.2009
Hér koma tímasetningar fyrir dómara og tímaverði á 6. flokks mótinu í KA-Heimilinu um helgina.
29.04.2009
Það verður stórleikur í KA heimilinu á fimmtudaginn þegar KA/Þór mæta FH í undanúrslitum 2. deildar kvenna í
handbolta. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og hvetjum við alla stuðningsmenn til að fjölmenna.
27.04.2009
Aukaæfing á morgun, þriðjudaginn 28. apríl klukkan 16:00 í KA heimilinu hjá strákunum í 6. flokki.
Kveðja Jóhannes Bjarnason
27.04.2009
Hér á eftir fara nýjar upplýsingar varðandi ferðatilhögun 6. flokks til Vestmannaeyja.
27.04.2009
Stelpurnar í KA/Þór fóru suður um helgina til að keppa í undanúrslitum Íslandsmótsins. Mótherjarnir voru lið
Stjörnustelpur sem enduðu í 2. sæti í deildinni en KA/Þór stúlkur enduðu í 3. sæti. Framan af leik var jafnt á öllum
tölum en um miðbik fyrri hálfleiks fór allt í baklás hjá norðanstúlkum.