12.01.2009
/*
/*
4. flokkur í handbolta fór suður um helgina að leika. Ferðin gekk mjög vel og handboltalega
séð var spilamennskan mest megnis góð um helgina. A-lið flokksins er mætt aftur til leiks og sýndi það eftirminnilega um helgina en þeir unnu
alla sína þrjá leiki glæsilega. B-liðið bæði spiluðu tvo leiki og unnu sitt hvorn leikinn.
08.01.2009
Þá er komið að fyrsta leik strákanna í 3. flokki eftir jólafrí og er hann ekki af verri endanum. Selfyssingar koma í heimsókn en
þeir eru í toppsæti deildarinar sem stendur. Því ætlum við að breyta og viljum hvetja alla sem gaman hafa að horfa á skemmtilegan
handbolta að mæta í KA heimilið á laugardaginn 10. jan kl: 17.00.
07.01.2009
6. flokkur drengja fer í keppnisferð til Reykjavíkur helgina 23.-25. janúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar um ferðina birtast hér á heimasíðunni á næstu dögum.
Foreldrar þeirra drengja sem ekki komast með í ferðina er beðnir um að tilkynna það til þjálfara sem fyrst.
Foreldrar sem hafa áhuga á að koma með sem fararstsjórar eru beðnir um að hringja í Jóhannes Bjarnason í síma 662-3200.
Þess má geta að mánudaginn 19. janúar verður æfingamót við Þór í KA heimilinu 15:30-17:00.
05.01.2009
Það var stór hópur stúlkna sem mætti upp í KA heimili þriðjudaginn
30. desember til þess að spila handbolta.
Hugmyndin kom frá fyrrum þjálfara meistaraflokks kvenna, Hlyni Jóhannessyni, að meistaraflokkur kvenna léki gegn gömlum KA/Þór kempum sem eitt
sinn léku undir hans stjórn. Það skal þó tekið fram að þessar "gömlu" kempur verða seint taldar gamlar í árum en
þó töluvert eldri en núverandi meistaraflokkur.
24.12.2008
Handknattleiksdeild KA vill óska landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
22.12.2008
Laugardaginn 20. desember var sérstök
jólaæfing í KA-heimilinu fyrir 7. og 8. flokk. Þar var farið í ýmsa leiki og óvæntir gestir kíktu í heimsókn með
glaðning í pokanum.
Þórir Tryggvason sendi okkur fullt af myndum frá æfingunni.
Smelltu hér til að skoða myndirnar.
20.12.2008
22. desember útiæfing, mæta í KA heimilið klukkan 13:50
27. desember útiæfing klukkan 11:30, mæta upp í KA heimili
29. desember 15:00-16:30 í KA heimilinu
30. desember 13:00-14:30 í KA heimilinu
19.12.2008
Æfingar hefjast aftur á nýju ári, miðvikudaginn 7. janúar kl. 15:00 hjá stúlkum en fimmtudaginn 8. janúar kl. 14:30 hjá piltum.
Gleðileg jól
Einvarður, Sævar, Lovísa og aðstoðarmenn
18.12.2008
Að þessu sinni verða æfingar hjá strákunum í 6. flokki þrátt fyrir jólafrí í skólum.
Næstu æfingar verða sem hér segir:
Laugardaginn 20. desember klukkan 10:30-11:30
Mánudaginn 22. desember klukkan 15:30-16:30
Laugardaginn 27. desember klukkan 10:30-11:30
Eftir áramótin verða æfingar síðan samkvæmt hefðbundinni æfingatöflu.
18.12.2008
Það var skammt á milli leikja hjá stelpunum. Fínt að bíða fram í desember eftir því að spila heimaleik og fá
síðan tvo í einni viku.
Fyrir leik var talað um hversu mikilvægt það er að mæta ákveðin til leiks og byrja leikinn af krafti. Það hugarfar skilaði sér
þó engan veginn inn á völlinn og andleysið var algert. Varnalega voru þær að berjast en náðu þó aldrei að klára brotin
nægilega vel ásamt því að einöld innleysing splundraði vörninni allt of auðveldlega. Fyrir vikið skoruðu FH stúlkur allt of mörg
fyrirhafnarlítil mörk.