Blakveislan hefst í dag | Mateo: KA vill berjast um alla titla

Blak

Blaktímabilið hefst formlega í dag með keppninni um meistara meistaranna. KA tekur á móti HK í kvennaflokki klukkan 16:30 og KA tekur á móti Hamar í karlaflokki. Báðir leikir fara fram í KA-heimilinu og af því tilefni fékk KA.is Miguel Mateo Castrillo, þjálfara beggja liða,  til að svara nokkrum spurningum um komandi tímabil.

Hver eru markmið karlaliðsins í vetur? Markmiðið er alltaf að sækja titla. Við viljum keppa um Íslandsmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. Enn við erum alltaf að sækja að því að bæta okkur sem lið, dag fyrir dag og viku fyrir viku. Við getum orðið raunsæari með okkar markmið þegar líður aðeins á veturinn.

Við unnum frekar óvænt í fyrra og það gerði blakið að enn meira spennandi sporti. Nú eru flest lið búin að styrkja sig og því mjög spennandi mót framundan. Og íslenska deildin er alltaf að verða betri og betri.

Hver eru markmiðin fyrir kvennaliðið í vetur? Liðið hefur breyst mjög mikið á milli ára svo að fyrst og fremst vill ég ná sömu ákefð og sömu liðsheild og undanfarin ár. Ég þekki ekki rosalega vel til nýju leikmannana í hinum liðunum svo við þurfum að fara varlega í markmiðasetningu. Hinsvegar vill KA alltaf vera að berjast um titla.

Hvernig er stemmingin í liðunum? Ég er virkilega ánægður og það kemur mér þægilega á óvart hversu hungraðir leikmenn eru fyrstu vikurnar á undirbúningstímabilunum. Við höfum verið að æfa 9x í viku og það er mjög góð ákefð og góð stemming á hverri einustu æfingu sem er mjög jákvætt. Það eru allir að leggja sig 120% fram í báðum liðum. 

Hvaða lið eiga eftir að standa sig best (og veita KA mesta samkeppni í vetur)? Ef við horfum á síðasta tímabil og leikmennina sem hafa bæst við hin liðin sé ég Hamar, Vestra og Aftureldingu vera lið sem öll geta gert góða hluti og unnið hvert annað. Ég vill samt ekki gleyma Þrótti Nes þar sem þeir sóttu sér nokkra nýja leikmenn og við þurfum að sjá hvernig þeir smella saman.

Hvað kvennadeildina varðar sé ég Aftureldingu, HK og Völsung berjast um titilinn með okkur.

 Hver er lykillinn að góðri leiktíð fyrir KA? Lykillinn að góðri leiktíð hjá okkur er að við séum að vinna í okkar liði hvern einasta dag og hvernig við getum gert hvort annað betri. Við þurfum að sýna ákefðina áfram, taka hana frá æfingum í leiki.

Við erum vanalega liðið sem að verst vel og gerir ekki mikið af mistökum, sem gerir það erfitt fyrir önnur lið að vinna okkur. Við þurfum að halda því áfram


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is