21.10.2011
Varnarmaðurinn Gunnar Valur Gunnarsson, sem hefur síðustu ár verið fyrirliði Fjölnis í Grafarvogi, hefur ákveðið að ganga til liðs
við KA og spila með félaginu næstu tvö ár. Samkomulag þess efnis var staðfest í dag.
20.10.2011
Innheimta æfingagjalda í
knattspyrnu hefst í KA-heimilinu miðvikudaginn 26. október kl. 17-18. Síðan verður innheimta alla miðvikudaga í nóvember á sama
tíma. Forráðamenn iðkenda eru eindregið hvattir til þess að greiða æfingagjöldin á þessum auglýsta tíma. Afar
mikilvægt er að gera grein fyrir æfingagjöldunum eigi síðar en í lok nóvember.
19.10.2011
Stelpurnar á eldra ári í 5. flokki kvenna fóru til Reykjavíkur um síðustu helgi. Voru þær skráðar í efstu deild
þannig að ljóst þótti að allir leikir yrðu hörkuleikir. Ekki bætti úr skák að þar sem færðin var ekki sú
besta var dágóð töf á leiðinni þannig að þær náðu í hús korteri fyrir fyrsta leik.
19.10.2011
KA hefur gert nýjan eins árs samning við skoska miðjumanninn Brian Thomas Gilmour, en hann kom til KA í félagaskiptaglugganum í júlí sl. og
spilaði átta leiki með félaginu út tímabilið.
17.10.2011
Þórir Tryggvason sendi okkur myndir frá laugardeginum þegar KA/Þór vann FH í N1 deild kvenna með 24 mörkum gegn 22.
17.10.2011
Landslið Íslands i karlaflokki í knattspyrnu undir 17 ára gerði sér lítið fyrir í dag og sigraði Ísraelsmenn í lokaleik
síns riðils í undankeppni Evrópumóts landsliða í Ísrael og þar með sigruðu Íslendingar riðilinn og tryggðu sér
farseðilinn í milliriðla keppninnar. KA-maðurinn Fannar Hafsteinsson stóð á milli stanganna í marki Íslands í öllum þremur
leikjunum og stóð sannarlega fyrir sínu.
17.10.2011
Í lokahófi Þórs/KA sl. föstudagskvöld fengu þrjár KA-stelpu viðurkenningar fyrir að skara framúr í 2. flokki á
liðnu keppnistímabili. Ágústa Kristinsdóttir var valin sú besta í flokknum, Lára Einarsdóttir efnilegust og Freydís
Kjartansdóttir var útnefnd leikmaður leikmannanna.
16.10.2011
Íþróttahús KA var vígt þann 18. október árið 1991 og verður það því 20 ára næstkomandi
þriðjudag. Margir merkir íþróttaviðburðir hafa verið haldnir í þessu húsi og var það á árum áður
helsta ljónagryfja landsins í handboltanum. Í tilefni afmælisins og að húsið hefur nú verið endurnýjað umtalsvert (nýtt
gólf og nýir bekkir) verður smá afmælishátíð á þriðjudaginn og hefst hún kl. 18. Verður þá
íþróttahúsið opið öllum og boðið upp á veitingar og svo verður hægt að leika sér í salnum.
Við hvetjum KA-fólk og Akureyringa alla til að líta í heimsókn í KA-heimilið á þriðjudaginn kl
18.00.
15.10.2011
KA/Þór fékk sín fyrstu stig í N1-deild kvenna er liðið lagði FH að velli í KA-heimilinu í dag, 24-21. FH-stúlkur voru sterkari
aðilinn framan af og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 13-10. KA-stúlkur sneru dæminu við í seinni hálflei og það var ekki
síst fyrir frammistöðu færeyska markvarðarins, Fridu Petersen, að KA/Þór landaði að lokum tveggja marka sigri, 24-22, en Frida varði 18 skot
í leiknum.
14.10.2011
2.flokkur KA kemur saman að nýju eftir haustfrí 25.október kl 18:30 í boganum.