Fréttir

Janez Vrenko í Þór (Staðfest)

Þór hefur gengið frá samningi við varnarmanninn Janez Vrenko en hann kemur til félagsins frá KA. 

Tvífarar: Haukur Heiðar og.....

Tvífarar þessa vikuna eru aðsentir en það er annars vegar varnarmaðurinn Haukur Heiðar Hauksson og 

KA sigraði í A- og B-liðum í Greifamótinu

KA sigraði í bæði flokki A- og B-liða á Greifamóti KA sem haldið var um helgina. Það er yngriflokkastarf KA sem stendur fyrir þessu árlega móti í samstarfi við foreldraráðs 3. flokks KA.

Umfjöllun: Tap fyrir Skaganum (Myndir)

Umfjöllun að þessu sinni verður grátlega mögur og leiðinleg, en kerfið tók mig duglega aftan frá þegar ég var búinn að semja maraþon umfjöllun, semja magnaðan pistil og taka saman "reynslu" tölfræði. En KA tapaði í gær 5-0 fyrir reynslumiklu skagaliði

5-0 tap fyrir Skagamönnum

ÍA 5 - 0 KA  1-0 Gary Martin ('5)  2-0 Gary Martin ('20)  3-0 Gary Martin ('60)  4-0 Gary Martin ('85)  5-0 Mark Doninger ('87) Umfjöllun ásamt myndböndum af leiknum detta inn vonandi á morgun

Upphitun:

"Þetta verður örugglega baráttuleikur gegn KA fyrir norðan á laugardaginn, KA-menn hafa alltaf verið erfiðir heim að sækja fyrir norðan, en við eigum auðvitað góða möguleika í leiknum." Sagði Þórður Þórðarsson þjálfari skagamanna og auðvitað fyrrum leikmaður KA við vef skagamanna en ÍA leggur í langferð norður fyrir heiðar og etur kappi við okkar menn í KA á morgun laugardag. Leikurinn er liður í Lengjubikarnum og hefst hann stundvígslega klukkan 17:30

Nýr fjögurra ára samningur um Greifamótin

Knattspyrnudeild KA og Greifinn veitingahús hafa gert nýjan samning um Greifamót KA í knattspyrnu sem gerir ráð fyrir að Greifinn verði aðalstyrktaraðili Greifamótanna fram á vor árið 2014.

KA - Getraunir, 2. keppni lokið

Á dögunum lauk 2. keppni innanfélagstippleiks KA - Getrauna í vetur. Mikil spenna ríkti á toppnum fram á síðustu stundu en Stefáni Guðnasyni, sem gjarnan hefur verið líkt við berserk á milli stanganna hjá Akureyri Handboltafélagi, tókst með ævintýralegum hætti að glutra niður ágætri forrustu á síðustu metrunum. Því var það Arnór Sigmarsson sem stóð uppi sem sigurvegari. Arnór fékk fyrir vikið vegleg verðlaun frá styrktaraðilum KA - Getrauna sem í þessari umferð voru: Norðlenska, JMJ/Joe's, Abaco, 1862 Nordic Bistro og Light Clinic.

Greifamót KA í 3. flokki 25.-27. febrúar

Árlegt Greifamót KA í þriðja flokki karla í knattspyrnu verður haldið dagana 25.-27. febrúar. Að mótinu stendur yngriflokkastarf KA í knattspyrnu ásamt foreldrastarfi iðkenda í þriðja flokki karla.

Hagnaður af rekstri knattspyrnudeildar árið 2010

Rekstur knattspyrnudeildar KA skilaði rösklega sjö hundruð þúsund króna hagnaði á liðnu starfsári. Þetta kom fram á aðalfundi knattspyrnudeildar KA, sem var haldinn í gærkvöld.