Fréttir

4. flokkur karla: A-liðið leikur í úrslitakeppni á miðvikudag

Á morgun, miðvikudag, mætir A-lið 4. flokks Gróttu í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikurinn verður í KA-Heimilinu klukkan 18:30 og er fólk eindregið hvatt til þess að mæta. Strákarnir urðu fyrir stuttu deildarmeistarar og er núna komið að úrslitakeppninni.

4. flokkur kvenna í dag þriðjudag

B liðið spilar klukkan 16:30 í KA heimilinu gegn Stjörnunni úr Garðabæ. Þetta er síðasti leikur stelpnanna í deildarkeppninni í vetur. A liðið leikur svo strax á eftir eða klukkan 18:00.  Það er hins vegar umspilsleikur gegn Val um laust sæti í 8-liða úrslitum þannig að það er til mikils að vinna hjá stelpunum, hreinn úrslitaleikur.

Stórsigur hjá 4. flokki kvenna gegn Fram

Stelpurnar í 4. flokk spiluðu tvo leiki um helgina við Fram. Voru þessir leikir síðustu leikir liðsins í deildinni í vetur. Fyrri leikurinn fór rólega af stað og var jafnt á tölum fyrstu mínúturnar. Eftir það sigu KA stelpur fram úr og héldu öruggri forustu þó leikurinn héldi áfram að vera óttalega rólegur. Leikurinn endaði 25-15 KA í vil og einn rólegasti leikur tímabilsins staðreynd. Óttalegt andleysi var í stelpunum og þrátt fyrir tíu marka sigur léku þær langt undir getu, gerðu í raun einungis það sem þær þurftu.

Stefán Gunnlaugsson nýr formaður KA í viðtali

Stefán Gunnlaugsson var kosinn formaður Knattspyrnufélags Akureyrar á nýliðnum aðalfundi félagsins. Blaðamaður síðunnar settist niður með honum á dögunum og ræddi við hann...

Ný heimasíðu júdódeildar

Ný heimasíða júdódeildar KA. Vegna samræmingar íþróttadeilda innan KA hefur júdódeildin fengið nýja heimasíðu. 

Upphitun: KA - KS/Leiftur

Á morgun, sunnudag, taka KA-menn á móti KS/Leiftri í síðasta leik beggja liða í Lengjubikarnum en leikurinn hefst kl. 15:00.

Síðustu heimaleikir 4. flokks kvenna

4. flokkur kvenna spilar sína síðustu heimaleiki þetta árið á næstu dögum. A liðið spilar tvo gríðarlega mikilvæga leiki við Fram á föstudag klukkan 19:30 og síðan klukkan 11:00 á laugardaginn. Báðir leikirnir fara fram í Síðuskóla. KA þarf þrjú stig úr þessum tveimur leikjum til að tryggja sér sæti í umspilinu um laust sæti í 8 liða úrslitum og því ljóst að um mikilvæga leiki er að ræða. Því er um að gera að drífa sig í kaffi til Gunna Mall í Síðuskóla og hvetja stelpurnar áfram. B liðið á svo leik klukkan 16:30 í KA heimilinu næstkomandi þriðjudag. Þessum leik hefur tvívegis verið frestað þar sem að Stjarnan komst ekki. B liðið hefur verið að sækja í sig veðrið eftir áramót og unnið marga góða sigra.  Hafa þær fengið fjórtán stig úr níu leikjum og spilað glimrandi handbolta inn á milli. Því er um að gera að sjá stelpurnar spila í þessum síðasta heimaleik þeirra á tímabilinu.

Aðalfundur K.A. var haldinn í gærkvöld

Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar var haldinn í gærkvöld. Á bilinu 60-70 félagar mættu á fundinn og þykir það góð mæting miðað við fyrri ár. Hægt er að lesa nánar um fundinn með því að smella á "Lesa meira".

Unglingaflokkur kvenna: Tveir sigrar á FH

Það var nóg að gera hjá leikmönnum Akureyrar og FH í unglingaflokki þegar liðin mættust tvívegis með u.þ.b. hálftíma stoppi á milli leikja. Þessari törn lauk þannig að Akureyri sigraði í báðum leikjunum, 20-15 og 22-19 og skiluðu stelpurnar fjórum stigum í hús. Með þessum stigum tryggðu stelpurnar þriðja sætið í deildinni en Fram stelpurnar sem sitja í 4. sætinu geta ekki náð Akureyrarliðinu. Þessi lið mætast svo í KA heimilinu á sunnudaginn klukkan 13:00 en það er einmitt síðasti leikur Akureyrarliðsins í deildarkeppninni á þessu tímabili.

KEA býður öllum á leik Akureyrar og HK á sunnudag

Það verður sannkallaður stórleikur í N1-deild karla á sunnudaginn þegar Akureyri fær HK í heimsókn. KEA hefur ákveðið að bjóða öllum á leikinn og því ástæða til að hvetja alla til að mæta á leikinn sem hefst klukkan 15:00 í KA heimilinu. Það ber jafnframt til tíðinda að sjónvarpið verður með beina útsendingu frá leiknum og því mikilvægt að Akureyringar sýni þjóðinni raunverulega heimaleikjastemmingu eins og hún getur best verið.