26.05.2010
Búið er að láta inn á síðuna myndaveislur úr leikjum KA gegn Gróttu og svo Draupni. Einnig eru myndir úr leik 2. flokks gegn
Stjörnunni sl. mánudag komnar inn.
Sævar Geir Sigurjónsson ljósmyndari síðunnar tók þessar glæsilegu myndir og kunnum við honum bestu þakkir fyrir það.
26.05.2010
Föstudaginn 28. maí fara KA menn í heimsókn á Suðurnesin. Þar mæta þeir liði Njarðvíkur á Njarðtaksvelli. KA
liðið hefur aðeins dalað í síðustu leikjum en nú er að fá sigur og rífa liðið upp.
ATH: Leiknum hefur verið flýtt til 19:00
25.05.2010
Valgerður Davíðsdóttir sér um kaffihlaðborð á leikdögum hjá KA-liðinu. Í hálfleik er kaffi fyrir ársmiðahafa og
svo eftir leik fá leikmenn og dómarar hressingu en um allt þetta sér ,,Valla veitingastjóri," og segir hún að það sé alltaf gaman að
hitta KA fólkið í kaffinu á leikjum.
24.05.2010
Strákarnir í 2. flokki byrjuðu tímabilið gríðarlega vel með sannfærandi 6-0 sigri á Stjörnumönnum í dag. Leikið var
í Boganum og sýndu strákarnir að þeir geta vel náð langt í sumar ef þeir vilja.
23.05.2010
Á morgun, mánudag, leika strákarnir hans Míló í öðrum flokki sinn fyrsta leik. Það er heimaleikur gegn Stjörnunni en leikurinn fer
fram í Boganum kl. 12.
23.05.2010
Það var blíðskaparveður þegar KA menn mættu í Breiðholtið til að taka 3 stig með sér norður en ekki gekk áætlun
þeirra upp. ÍR-ingar hirtu öll stigin og eru því taplausir eftir þrjár umferðir og tróna á toppi deildarinnar.
21.05.2010
Nú rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslit VISA-bikarsins í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. KA-menn voru
í pottinum og drógust gegn HK og ljóst að það verður hörkuleikur en liðin eru saman í deild einnig í sumar. KA kom sem fyrra lið
úr pottinum og því fer leikurinn fram á Akureyri.
21.05.2010
Á laugardaginn, 22. maí ferðast KA menn til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Breiðholtið og heimsækja ÍR-inga. KA-menn hafa unnið sinn
eina útileik til þessa og vonandi að strákarnir nái að fylgja því eftir og komast aftur á sigurbraut í deildinni.
20.05.2010
Jóhannes Valgeirsson hefur verið einn fremsti dómari landsins undanfarin ár en hann er einn þriggja dómara sem dæma fyrir hönd KA og eru í
svokölluðum Landsdómara A flokki.
19.05.2010
Fyrirhuguðum leik KA og KR í 2. flokki sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað um óákveðinn tíma. KR-ingarnir ætluðu
að fljúga norður en vegna ösku í háloftunum úr eldgosinu í Eyjafjallajökli er ekki hægt að fljúga á milli
Reykjavíkur og Akureyrar.